Sifjar heimur.
02.10.2007 20:28:23 / sifa

Ný heimasíða.

Hæ ætlaði að láta ykkur vita að ég er að prufa nýja heimasíðu sem slóðin er http://123.is/sifagn

Þar kemur allt sem ég skrifa inn og eflaust líka allt sem ég geri á Spáni.

kv. Sif.:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 20:27:46 / sifa

Innflutningsparty.

Hæ...jæja fór að djamma á laugardaginn :)

 djö var gaman :) Eva og Gulli voru að flytja og buðu okkur í party :)

 Ég set hérna inn myndir frá þessu kvöldi :)

 Kv. Sif.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:36:30 / sifa

Jæja...

Jæja...sælt veri fólkið :D

Jæja þá er allt til búið sambandi við Barcelona...ég er búin að kaupa flugmiða, búin að borga skólann og fjölskilduna og núna er ég bara að bíða eftir að fá flugmiðana í pósti og fá upplýsingar um fjölskilduna ;) 8)

Vá hvað verður gaman að fara...hlakka svakalega til að fara ;) í sólina 8)

En í dag er ég að pakka aftur...ohh það er svo leiðinlegt að vera í kössum!!!! :^) En ég vona að það verði íbúð fyrir mig þegar ég kem heim þannig þið sem lesið þetta ef þið vitið um íbúð til leigu eftir áramót þá látiði mig bara vita :) :haha:

En já ætlaði bara að láta blogg hérna...

kv. Sif Spánarfari ;) :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 22:06:54 / sifa

Allir að kvitta!!!!

 

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku saman?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 19:45:11 / sifa

Spánn og slösuð...

HæHæ…:)

Jæja Þá er komið að færslu Ég er að fara til Spánar eftir 4 og hálfa viku að læra spænsku…:haha::haha: fer til Barcelona…guð mig hlakkar svakalega til ;) :D en pínu kvíðin líka hehe en það er bara heilbrigt :D held ég…humm…

Skólinn heitir EF Escuela Internacional de Espanol Barcelona 8| :D 

En ég var að slasa mig í vinnunni….:( var að fara í glamavélina og stiginn þar var ekki fastur svo ég stíg upp og í efsta þrepi dettur hel…stiginn og ég niður!!!!! Ojjjj þetta er svakalega vont…:$ ég gerði slysaskýrslu og svo var mér keyrt uppá slysó…svo núna sit ég í tölvunni að reyna að skrifa hérna bara með hægri hendinni…en ég er svo örvhent og ég get ekkert gert með vinstri…heh bara fyndið :lol:

En ég kem með fréttir sambandi við Barcelona…

Ble Sif ;) :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 22:40:03 / sifa

Blogg blogg :)

Hæhæ…eftir nokkrar áskoranir þá ákvað ég að skrifa hérna inn J

Það hefur nú ekki mikið skeð hjá mér en ég er flutt en humm er samt voðalega mikið á garðabrautinni J Ég er byrjuð að vinna after og humm mér finnst það bara ekkert voðalega skemmtilegt! Mig langar voðalega mikið að fara bara á samning J En á ég að segja ykkur svolítið…ég var að vinna á Amíra um daginn og var alveg full bókuð og svo tók ég eina í lit og plokk og hún var svona rosalega ánægð að hún bað um nafnspjald en þar sem ég er ekki með svoleiðis þá bað hún mig að skrifa á blað nafnið mitt svo hún gæti pantað aftur hjá mér… J Ugandan á stofuni var svo ánægð að hún bjó til nafnspjöld fyrir mig sem verða á stofunni J geggjað! Eigandinn sem heitir María sagði að ég ætti sko alveg heima í þessum bransa! Hehe maður verður svo geggjað ánægð þegar maður fær svona hrós!

En jámm svo er ekki svona gott að frétta sambandi við líkamsræktina…L æji eftir að ég og Atli hættum saman þá hef ég sokkið ofaní bara óhollan mat og eitthvað leiðindi! L Æji ég verð að halda mig við! Sérstaklega ef ég ætla eitthvað að hugsa um að fara til Portugal í október J

Ég er að fara á Akureyri 31. Ágúst til 2. September með Atla og Bjarney J Æji það verður voðalega næs J

Ég fór á Akureyri síðustu helgi sem var versló og ég fór með Evu Rakel, Gulla, Minney og Dabba svo var litla krúttið með hann Eyþór Atli J það var voðalega gaman J Þar sem ég átti afmæli á föstudeginum og var 23 ára og Minney átti afmæli 4.ágúst og var 31 árs þá buðu pabbi Gulla og konan hans okkur í mat á laugardeginum og það vat geggjað við fengum kjúkling on meðí J Ekkert smá gott fólk J Takk takk ;)

En jæja verð að hætta þessu núna er að fara að vinna á næturvakt…oh ekki alveg að nenna því en maður gerir gott úr þessu J

Bless í bili og endilega þið sem skoðið kvittið fyrir ykkur! Takk takk J

Sif J p.s. þið sem vitið ekki þá er ég líka með myspace síðu og endilega þið sem eruð með líka svoleiðis addið mér inn :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 16:35:00 / sifa

Hálló

Hæhæ...

27.júní í dag og hann pabbi gamli er 45 ára í dag...ég og Rut gáfum honum eitthvað skrúfusett...oh get ekki líst þessu hehe...hef nákvæmlega ekkert vit á þessu hehe 8|

En eins og fólk hefur heyrt þá er ég og Atli hætt saman :cry: Við sjáum bara til hvað framtíðin ber í skauti sér! :$

Ég er bara í Stykkishólmi núna en fer eflaust upp á skaga aftur á sunnudag eða mánudag.

Það verður grillboð heima hjá Ingibjörgu á föstudaginn og svo eitthvað djamm...eftir það :)

Svo írskir dagar eftir viku! ;) mig hlakkar óstjórnlega til þess ;) :haha:

En vitiði mig langar svakalega mikið að þið commentið á síðuna mína! Þetta er ekki alveg að virka ef enginn commentar :) :haha: :whut:

Bless í bili! ;) Sibba...:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 16:19:43 / sifa

Hvað er að!!!

Halló...

Jæja fór á djammið í gær! Og jamm það var geggjað...já var pínu full hehe...

En hvað er málið með þessa útlendinga sem fara alltaf á mörkina eru þeir þarna bara til þess að horfa á stelpurnar!!! Oj hvað mér finnst þetta vera ógeðslegt!

Þú veist maður er bara að dansa þarna á dansgólfinu og svo standa allir útlendingarnir hringinn í kringum dansgólfið og glápa!!!

 

En nóg um það...jamm ég fór að djamma með Evu, Rut, Belindu og Mæju...og hittum fullt af fólki þarna líka en svo þegar mörkin var búin að loka þá löbbuðum við heim og þegar við vorum að labba á kirkjubrautinni þá sáum við að það var maður sem lá þarna í götunni og við fórum til hans og þá kom í ljós að hann var með gat á hnakkanum og það blæddi og blæddi! Guð hvað mér leið ekki vel þegar ég sá þetta! Hann var hálf vankaður og við vitum ekkert hvað skeði ég frétti að hann hafi komið svona frá húsasundi! Veit ekki meira...:$

En við hringdum á neiðarlínuna og ég er að segja ykkur það að ég held að við höfðum þurft að bíða í 10 mín eftir að hel...sjúkrabíllinn kom...:^)en þegar hann kom þá var löggan búin að koma og taka manninn og fara með hann upp á sjúkrahús...þetta á ekki að viðgangast svona! Ég meina hann lá þarna í blóði sínu!

En jamm...er svo að fara vestur í hólminn næstu helgi og fara að grilla með vinunum þar og djamm hehe svo helgina eftir þá eru írskir dagar...og þið vitið hvað verður þá hehe lopapeysan og ekki verður maður edrú þar hehe :)

 

Jæja bið að heilsa ykkur...ble í bili...Sif humm bitta! :) :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 13:16:19 / sifa

Halló

 

Hæhæ öll sömul:)

Voaðlega er ég eitthvað dugleg að blogga núna hehe :)

En ég er að fara í viðtal sambandi við vinnu á morgun því ég get ekki verið í álverinu útaf exeminu:S en það er kannski bara ágætt ég meina ég er komið með nett ógeð á að vera þarna og langar að fara að drífa mig á samning í snyrtifræði:) Ég er að fara að tala við konu sem á stofuna Amíra í Kópavogi...Ég er búin að heyra að þetta sé fín stofa góður mórall og eitthvað. :) Mér kvíður geggjað fyrir þessu :S en þetta reddast haldiði ekki? Hihi

 

En ég byrjaði í ræktinni aftur í morgun og vá hvað er erfitt að byrja aftur eftir svona frí hehe ég var að drepast hehe en ég á 3 tíma eftir hjá Aldísi og þá ætla ég að vera ein í þessu enginn einkaþjálfari :) vonum bara að það gangi hjá mér en +eg byrja þá bara aftur hjá henni ef eitthvað gengur ekki hehe :)

 

En ætla ekki að hafa þetta lengra í dag....ætla að láta fylgja myndir gamlar :) sem nýjar nýju myndirnar fékk ég á síðunni hennar Þóru takk Þóra mátti ég það ekki hehe :)

 

Begga full ;) hehe

 

Guðlaug og Snæbjört í sjóbuxum:)

 

Ég og Rut 2001 ;)

 

Bogga, Rut, Snæbjört, Guðlaug og ég svo fyrir neðan er Bergdís og Snoppa held ég;) áramót 2000

 

Tvíburasysturnar;)

 

Ég 2001 með miller drakk það alltaf á þessum tíma hehe :)

                                

Mjög lítil mynd hehe ;) en Þóra, Eva og ég.

                                

Ég á djamminu á sjómannadagshelgina...mér fannst þessi bara svo fyndin;)

Bið að heilsa ykkur í bili...kv. Sif.


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 00:19:09 / sifa

Helló

 
 
 

Halló...

Hvað segiði...???

Jæja voðalega lítið að frétta héðan nema að ég er í veikindafríi úr vinnu og einkaþjálfara...(á ég eftir að fitna aftur hehe)

þegar ég kom heim úr næturvaktinni á miðvikudaginn þæá endaði ég uppá sjúkrahúsi því það þurfti að hreins upp exemið og setja það í umbúðir :( ég er orðin svo þreytt á þessu exemi!!!

En jæja núna loksins er ég að setja inn myndir síðan ég var að djamma með stykkishólmsgellunum....og svo á geggjaða djamminu fyrstu helgina í júní:) :haha:

Ég setti þær inn á barnaland því ég kann ekki að setja inn myndir he´rna inn eða ég man ekki hvernig ´g geri það orðingömul hehe ;) en þið klikkið bara á linkinn sem heitir myndir Sifjar og farið í myndir og svo er leyninr. Garpur.

 

Mynd ársins ;) Sif reykingarmanneskja;)

 

hehe má ég sjá uppí þig ;)

 

hehe hvað er svona fyndið;)

 

Ég, Eva og Gulli

 

Fín mynd:)

Jæja bið að heilsa ble ble


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 13:29:57 / sifa

Lífið er skrítið!

 

Sæl veriði öll sömul...

Loksins er ég að skrifa nýja færslu inn á bloggið ekki seinna vænna! :)

En þið sem þekkið okkur...þá hættu Rut og Tóti saman um helgina...:( :$:cry: þetta er voðalega sorglegt! En það er vonandi að þau jafni sig sem fyrst á þessu... Ég hef fulla trú á Rut að geta dregið sig upp úr þessu!

Svo hitt sem skeði! ég ætla ekki að segja það hérna inni en ....þetta var það hrikalegasta sem fólk getur gert öðrum! Aumkunnasta lið sem ég hef nokkurntímann kynnst!!! ég er svo reið að ég bara er BRJÁLUÐ!!!!!! OH....svona djö fólk! :evil: :^)

En annað léttara...þá opnaði bónus hérna á skaganum á laugardaginn seinasta og svo fór ég í afmæli til Nínu ömmu á laugardaginn hún var 70 ára....við syskinin og makar og börn gáfum henni dekurdag á snyrtistofunni í Stykkishólmi...það var andlitsbað og lit og plokk....vonandi að hún njóti vel ;)

En jamm...á eurovision helginni fór ég út að djamma...með Evu Rakel, Belindu, Kollu! við fórum heim til Minneyjar og þar var fullt af fólk eða svona passlegt og svo enduðum við á mörkinni og svo man ég rosalega lítið eftir það hehe :haha::haha: það var mjög gaman en þegar égb kom í vinnuna eftir helgina þá frétti ég ýmislegt hvað ég var að getra og segja hummm ég ætla ekki að skrifa það hérna inni ;) hehe....

 En jæja bið að heilsa...í bili....

Sif djammari :) :haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 23:34:20 / sifa

Sæl....

Sæl veriði0

Jæja þá var Bjarney að fara í dag 0 en það er stutt í það að hún komi aftur 0

Við fórum í afmæli til Jón Agnars á Laugardaginn seinasta og það var mjög gaman hann er orðin svo stór 0 Við gáfum honum bangsímon smekk, sandkassadót og púsl 0

Jámm...það er ekki mikið að frétta héðan...það er vigtun á morgun og humm...æji...mér finnst þetta ekkert vera að virka! eða ég sé ekkert ám ér nema kannski buxurnar...þær eru farna að týnast 0 hehe smá ýkjur en samt orðnar frekar stórar 0

En jamm ætla að láta þetta á síðuna mína, en við erum að reyna að selja hillusamstæðuna okkar og hillu sem við eigum ef ykkur vantar eða vitið um einhvern þá endilega látið okkur vita 0

Ég ætla að setja inn myndir af þessu og humm jamm ef ykkur vantar... 0

Svo koma nokkrar myndir úr afmælinu hans Jón Agnars 0

 

Gummi og Begga kíktu í afmælið 0

 

Fjölskildu mynd 0

 

Kaka sem ég bakaði fyrir afmælið 0

 

humm önnur 0

 

Ég og afmælisbarnið yndið mitt 0

 

Tvíburamynd 0

Jæja bið að heilsa ykkur ble ble... 0 Sif...

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 11:24:41 / sifa

Jón Agnar 1 árs :)

Sæl veriði:)

Jæja þá er komin sá tími að Jón Agnar er 1 árs í dag :) Þið sem vitið ekki hver það er þá er hann sonur Rutar systir minnar :) Vá hvað ´tíminn er fljótur að líða...ég man eftir því að ég fór inná fæðingastofuna þegar hann var bara 10 mínútna gamall :D oh...það var æði! En það er víst ár síðan :)

En Jámm...Jón Agnar innilega til hamingju með daginn :)

Ég ætla að láta fylgja með nokkrar myndir af honum :)

Bless í bili :)

 

Sætur:)

 

Frekjuskarð:)

 

Mér finnst svo stutt síðan hann var svona lítill :) 8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 00:07:16 / sifa

kíló kíló kíló ;)

Hæhæ...

Jæja fór til einkaþjálfarans í dag ég sem er ekki búin að geta mætt í meira en viku útaf veikindum...og viti menn ég fór í vigtun og mælingar og á vigtinni stóð að ég væri búin að missa 2 kíló í viðbót! Þannig síðan ég byrjaði er ég búin að missa rúm 5 kíló... :haha: vá ég trúi þessu ekki því ég sé þetta ekki sjálf! :$ En það hlýtur að koma... 8|

Ég er búin að missa 3.5 cm af mér í viðbót... þannig frá byrjum er ég búin að missa 10 cm af mér :) :haha:

Já! jæja ætlaði bara að skrifa þessa færslu inn...Guðrún og Bjarney eru hérna hjá okkur, mamma og pabbi eru ´Reykjavík svo að Guðrún vildi svo koma með okkur upp á skaga...

Svo er fermingarveisla hjá Degi Frey á sunnudaginn...svo það er nóg að gera...

En kveð í bili!

Sif ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 14:16:17 / sifa

Veikindi :(

Hæ allir saman!

Jæja ég er búin að vera veik núna síðan á Mánudaginn...oh..ég fór með Mæju til Huldu upp á sjúkrahús á mánudaginn þá var ég svona farin að finna olgu í maganum og svo fórum við og heimsóttum hana...og sáum litla son hennar oh hann er avo sætur!!! En jamm ég hef aldrei skammast mín jafn mikið en ég þurfti að fara út til að ég mun ekki æla þarna inni hjá þeim hehe...en það var alveg að fara að líða yfir mig!!! :$ Guð hvað ég skammaðist mín ég sagði við Huldu hey ég þarf að fara mér líður eitthvað skríngilega!!! hehe...guð...

En allaveganna fékk ég þessa ógeðslegu ælupest og í gær var ég slöpp en ekki með ælupest og svo í dag er ég enn með einhvern verk í maganum og fæ mig ekki til að borða neitt...oh...þetta er svo erfitt!!! en ég finn það líka að ég hef ekki komist til einkaþjálfarans og ég finn það alveg að mér líður ekki nógu vel... útaf því!!! mig vantar hreyfingu svo ég ætla að reyna að taka til í dag....eða gera eitthvað sem ég get!!!!

 

Jæja bið að heilsa´i bili...Sif veiklulega!!! :$


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4